1.10.2007 | 21:31
Skyndibitar
Fyrsti "drive through" skyndibitastaðurinn, sem var stofnaður, var Pig Stand veitingahúsið í Los Angeles. Eigandinn, Royce Halley, var vanur að koma út bakdyramegin og afhenda hinar frægu "Barbequed Pig" samlokur til bílstjóra sem keyrðu upp að húsinu. Þetta var árið 1928. Í dag er 80 % af söluaukningu McDonalds í Bandaríkjunum í gegnum bílalúgur.
Og enn keppast eigendur stóru veitingahúsakeðjanna við að finna nýjar og fljótvirkari aðferðir til að mæta þörfum viðskiptavina.
Sagt er að Starbucks hafi í tilraunaskyni komið upp myndavél við aðrein að einu veitingahúsi sinna sem tekur mynd af viðskiptavinunum um leið og þeir keyra upp að húsinu og sendir rafrænt í tölvu í eldhús veitingahússins. Ef viðskiptavinurinn er þekktur þá finnur starfsfólkið til matinn - áður en viðkomandi pantar.
Markmiðið er að finna til vöruna, jafnvel áður en þig langar í hana, alla vega eigi síðar en sekúndubrotum eftir að bragðlaukarnir kalla.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.