Bekkurinn minn

multicultural kidsSpakur maður sem ég hitti í sundi, rétt áður en ég fór hingað út til náms, sagði aðspurður að ég kæmist fljótlega að því í skólanum að aldurinn skipti engu máli. Þetta snerist allt um "karaktera". Hann talaði af reynslu eftir framhaldsnám í Edinborg fyrir nokkrum árum. Ég gæti varla verið meira sammála. Aldur, kyn, reynsla, þjóðerni; allt skolast þetta í burtu í hita leiksins og fólk hópar sig saman án tillits til þessara  ytri einkenna. Við erum öll búin að festa okkur sæti í fyrirlestrarsalnum eftir nokkrar þreifingar í byrjun. Ég sit á milli tveggja skarpgreindra og skemmtilegra stelpna, önnur frá Ghana með háskólapróf í ensku og hin er sálfræðingur frá Póllandi. Þær eru báðar 24 ára. Við tilheyrum lítilli klíku og eru flestir aðrir  í hópnum okkar með háskólapróf í  hagfræði.

Á mánudagskvöldum er stundað svokallað "pub quiz" á kránni Illicit og við hittumst líka til að fara yfir niðurstöður verkefna. Eins og ég hef áður skrifað þá hafa námskeiðin í haust snúist afar mikið um útreikninga af ýmsu tagi. Verðlagningu, afleiður, bestun, núvirðingu og lengi mætti telja. Mér hefur auðvitað fundist ég vera meira í því að þiggja fróðleik annarra (hagfræðinganna) við úrlausn verkefna heldur en að ausa úr mínum viskubrunni. Ég varð því afskaplega stolt yfir því að graf sem ég gerði í einu verkefnanna skuli nú vera meðal eftirsóttustu vörunnar á svæðinu. Ég hef ekki undan að senda það til bekkjarfélaganna og á inni niðurstöður í dæmum um ókomna tíð sem þakklætisvott! 

Ég er gríðarlega ánægð með litla hópinn minn og bekkinn í heild en við erum yfirleitt um eitt hundrað í fyrirlestrum og um tuttugu í dæmatímum. Það ríkir mikill húmor í kennslustundum og það ríkir sannarlega alþjóðlegur andi í hópnum því við komum frá 30 - 40 löndum.  Og maður kemst fljótlega að því að það er ekki nóg með að hjörtu mannanna slái eins í Súdan og á Grímsnesinu, heldur líka í þeim tvítugu sem og þeim hálffimmtugu!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband